Nýtt starfsár hafið
Hymnodia hefur nú tekið til starfa eftir sumarleyfi og á dagskránni eru spennandi verkefni að venju. Fyrstu æfingar haustsins hafa farið í að læra tónlistina í óperunni Dido og Aeneas eftir Henry Purcell sem flutt verður í Hofi 1. apríl 2012. Félagar úr kórnum sjá um einsöngs- og samsöngshlutverk í óperunni og allur kórinn tekur þátt í túlkun og sviðsetningu verksins. Einnig eru í undirbúningi jólatónleikar í samvinnu við ungkvennakórinn Ísold. Þeir verða haldnir í Akureyrarkirkju 22. desember. Hymnodia hyggst líka halda nokkra smærri tónleika í vetur sem auglýstir verða með skömmum fyrirvara og einnig er í undirbúningi plötuupptaka sem þó er ekki ákveðið hvenær verður af. Vonandi verður það á vordögum og vonandi verður hægt að taka plötuna upp í verksmiðjunni gömlu á Hjalteyri þar sem er einstakur og óvenjulegur hljómur. Myndin hér fyrir neðan er af tónleikum í Hafnarborg í febrúar 2011 þar sem Stjórnarskrá Íslenska lýðveldisins var flutt fyrir fullu húsi áheyrenda.



