Hymnodia og Hjörleifur slógu í gegn á jólatónleikum
Um 170 manns sóttu jólatónleika Hymnodiu og Hjörleifs Arnar Jónssonar slagverksleikara sem haldnir voru í Akureyrarkirkju fimmtudagskvöldið 4. desember. Bókstaflega má segja að þarna hafi kórinn slegið í gegn með þeim frábæra tónlistarmanni sem Hjörleifur Örn er. Eyþór Ingi spilaði á orgel og sembal en Hjörleifur Örn á víbrafón, trommur, pákur og alls kyns slagverk svo úr varð mjög óvenjuleg jólahljómaveisla sem þannig var fram sett að nær aldrei varð þögn milli laga. Fóru margir tónleikagesta út í leiðslu og með nýja tónleikareynslu í sarpinum. Hér er tóndæmi af tónleikunum, þýska jólalagið kunna Sjá himins opnast hlið við kvæði Björns Halldórssonar.


