Fréttir

Gleðilegt nýtt ár!

 

forsa_pltu_640Gamla árið kvaddi Hymnodiu með virktum. Blaðamenn og tónlistargagnrýnendur Morgunblaðsins settu plötu kórsins, Heyr mig mín sál, í fjórða sæti af tíu bestu plötum ársins og í raun má segja að hún sé efst af þeim plötum sem flokkast til klassískrar tónlistar. Í fyrsta sæti var Fordlandia Jóhanns Jóhannssonar, Sigurður Flosason og Sinfóníuhljómsveit Íslands í öðru sæti, platan Ró með Mógil í því þriðja og svo Hymnodia. Neðar á listanum lentu Ísafold, Ghostigital, Apocrypha, Mótettukórinn, Hrím Gunnars Gunnarssonar og Blátt ljós Sigurðar Flosasonar. Jafnvel þótt plata Hymnodiu hafi ekki verið tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna má með sanni segja að hún hafi fallið í kramið hjá tónlistarspekúlöntum. Í gamlársdagsblaði Morgunblaðsins segir um plötu Hymnodiu, Heyr mig mín sál: „Einlæg og tær túlkun á kórverkum íslenskra kvenna. Gæðagripur.“ Sjá nánar hér fyrir þá sem hafa aðgang að Morgunblaðinu á netinu.



Mynd augnabliksins

Facebook-síða Hymnodiu

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 4519

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning