- Veglegur styrkur frá Hlaðvarpanum!
Hlaðvarpinn, menningarsjóður kvenna, hefur ákveðið að styrkja verkefnið Tónlist íslenskra kvenna sem er flutningur og
útgáfa Hymnodiu á kórverkum eftir íslensk kventónskáld. Kórinn hlaut 500.000 króna styrk hjá Hlaðvarpanum. Verkefni
þetta heldur áfram á nýju ári því að Hymnodia hefur pantað ný tónverk hjá Karólínu Eiríksdóttur
og Önnu S. Þorvaldsdóttur og verða þau vonandi bæði frumflutt á árinu. Í september fer Hymnodia til Sviss og syngur tónlist
íslenskra kvenna þar á nokkrum tónleikum.


