- Útgáfutónleikarnir loksins á Húsavík
Útgáfutónleikar Hymnodiu sem féllu niður í nóvember vegna veðurs verða loksins haldnir sunnudagskvöldið 8. febrúar
2009 í Hvalasafninu. Á tónleikunum syngur kórinn valin lög af nýju plötunni en líka gamla og
góða kórslagara, meðal annars þingeysk lög. Að sjálfsögðu verður platan til sölu á staðnum en aðgangur að
tónleikunum er ókeypis.


