Fréttir

- Stórtónleikar 3. maí

Antonio Lotti 1667-1740
Antonio Lotti 1667-1740

Nú styttist í einn stærsta viðburð Hymnodiu á árinu, opnunartónleika 11. Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju. Þar kemur Hymnodia fram ásamt kammersveit sem meðal annars er skipuð breska fiðlusnillingnum Peter Hanson. Peter starfar meðal annars með hinum þekkta Eroica-kvartett í Lundúnum og hefur starfað með mörgum frægustu hljómsveitum Evrópu, meðal annars Lundúnafílharmóníunni undir stjórn sjálf Rostropovitsj. Lára Sóley Jóhannsdóttir leikur einnig í hljómsveitinni en hún er einmitt gamall nemandi Peters Hansons. Einsöng syngur Helena G. Bjarnadóttir og nokkrir aðrir félagar í Hymnodiu koma fram í tvísöng, tríói og kvartettum. Flutt verða verk eftir Antonio Lotti, meðal annars hin fræga Missa sapientiae, messa viskunnar. Hljómsveitin leikur verk eftir Antonio Vivaldi og einnig verður flutt eitt erfiðasta kórverk tónbókmenntanna, Singet dem Herrn ein neues Lied eftir Johann Sebastian Bach.

Forsala aðgöngumiða er í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju og hjá kórfélögum en tónleikarnir hefjast klukkan 16 á sunnudag, 3. maí. Sjá nánar um hátíðina á vef kirkjunnar, www.akirkja.is.



Mynd augnabliksins

Facebook-síđa Hymnodiu

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 4519

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á nćstunni

Engir viđburđir á nćstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning