Fréttir

- Reykjavík og Sviss

 

hymnodia__tnleikar__ruborg_640

REYKJAVÍK OG SVISS

Hymnodia heldur í tónleikaferð til Reykjavíkur og Sviss dagana 8.-16. september. Kórinn frumflytur tvö ný kórverk þriðjudagskvöldið 8. september á tónleikum sem haldnir verða á nýstárlegum tónleikastað. Leyfi fékkst til að halda tónleika í Rúðuborg, glerhýsi Orkuveitunnar við hlið gömlu Elliðaárstöðvarinnar. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Daginn eftir heldur Hymnodia svo til Sviss og syngur á þrennum tónleikum, í Zürich, Wettingen og Umiken. Tónleikarnir í Wettingen eru liður í 20 ára afmælishátíð Íslendingafélagsins í Sviss. Rósin í hnappagati Hymnodiu í þessari ferð eru tvö ný kórverk sem kórinn lét semja fyrir sig. Verkin eru Blíða eftir Karólínu Eiríksdóttur og Þann heilaga kross eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur. Hymnodia hefur átt sérstaklega gott og skapandi samstarf við báðar þessar listakonur undanfarin misseri. Auk þessara nýju verka verða flutt verk íslenskra kventónskálda sem komu út á fyrstu plötu Hymnodiu á síðasta ári.

Sjá nánar um plötuna hér.

 



Mynd augnabliksins

Facebook-síða Hymnodiu

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 4519

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning