Fréttir

- Námskeið í barokkdansi

Hlustaðu á danstónlist frá 17. öld eftir Jean-Babtiste Lully, hirðtónskáld Loðvíks XIV:

Gavotte            Menuet             Bourrée du Mariage forcé

 

 

barokkdans_640

 

Námskeið í barokkdansi

Nú er tækifærið að útvíkka sönglífið og bæta dansinum við því að Barokksmiðja Hólastiftis efnir til barokkdansnámskeiðs dagana 15.-16. janúar 2010. Barokkdansar eru í raun bara svolítið eldrigömlu dansar“ en flestir þekkja en fólk sem horft hefur á kvikmyndir eins og Sense and Sensibility og aðrar álíka kannast við þessa dansa. Gavotta, menúett og sarabanda eru dæmi um þessa dansa. Menningarráð Eyþings styrkir námskeiðið og Rarik er bakhjarl menningar í Eyþingi.

 

menningarrad_eythings_logo_640

 


Kennari á námskeiðinu verður Ingibjörg Björnsdóttir listdanskennari. Hún var um árabil atvinnumanneskja í ballett en hefur síðari árin lagst í miklar rannsóknir á sögu dansins og er mikill fróðleiksbrunnur. Meiningin er að byrja námskeiðið á föstudagskvöldinu, halda áfram á laugardagsmorgni og á fyrstu æfingunum verður tónlist leikin af plötum. Eftir hádegi á laugardeginum kemur til leiks barokkshljómsveit Barokksmiðjunnar og leikur undir dansi á þeim æfingum sem eftir verða. Um kvöldið er gert ráð fyrir dansleik eða sýningu og þá verður hægt að fá keyptan mat á veitingastaðnum RUB23 en námskeiðið fer annars fram í Ketilhúsinu á Akureyri.

Nánari upplýsingar fást í netfanginu peturh@ruv.is.

Allt er þetta gert til þess að hafa gaman af því og enginn þarf að óttast að þetta sé eitthvað voðalega menningarlegt eða uppskrúfað. Munum að barokktíminn var á margan hátt mjög glaðlegur tími í menningarsögunni. Hér efst á síðunni getið þið hlustað á dæmi um tónlist sem hljómaði við hirð Loðvíks XIV., tónlist eftir Jean-Babtiste Lully, hirðtónskáld sólkonungsins.

Dagskrá námskeiðsins

Föstudagur 15. janúar
  19.30-20.30 Hljómsveit æfir
  20.30-22.00 Danskennsla
  22.00-22.30 Dans m/hljómsveit  

Laugardagur 16. janúar
  09.00-09.30 Leikfimi/Hljómsveit æfir
  09.30-11.30 Danskennsla
  11.30-12.00 Dans m/hljómsveit

Hlé

  13.00-13.30 Hljómsveit æfir
  13.30-15.30 Danskennsla
  15.45-16.45 Dans m/hljómsveit


  18.00 Matur á RUB 23 ATH! MUNA AÐ SKRÁ SIG
  20.00 Barokk-ball/opið hús


Námskeiðið fer fram í Ketilhúsinu.

 

 


 

 

 

 



Mynd augnabliksins

Facebook-síða Hymnodiu

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 4519

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning