- Miđnćturtónleikar á föstudaginn langa
Miðnæturtónleikar á föstudaginn langa

Hymnodia kemur fram á miðnæturtónleikum í Akureyrarkirkju
að kvöldi föstudagsins langa.
Kórinn tók upp þennan sið á síðasta ári og ákveðið var að gera þetta að föstum lið í starfi hans. Kvennaraddir Hymnodiu eru í aðalhlutverki í þessari dagskrá og einsöngvarar koma úr röðum þeirra. Að auki kemur kvennakórinn Ísold fram með Hymnodiu en sá kór hefur slegið í gegn á Akureyri undanfarin misseri. Meðal annars verður flutt hið ægifagra verk Stabat mater eftir Pergolesi en einnig verk með sama nafni eftir franska barokksnillinginn Marc-Antoine Charpentier. Einnig má nefna þróttmikil rómantísk verk eftir Pjotr Tsjajkovskíj og sálminn Á föstudaginn langa sem er ómissandi á þessum degi. Kirkjan verður myrkvuð að mestu og sköpuð mögnuð stemmning fyrir þennan sorgardag í kirkjuárinu sem jafnframt gefur fyrirheit um nýja von.
Tónleikarnir hefjast klukkan 23.


