- Miđnćturtónleikar á föstudaginn langa
Hymnodia minnir á árlega miðnæturtónleika sína á föstudaginn langa klukkan
hálfellefu í Akureyrarkirkju. Í þetta sinn verður söngurinn að mestu án undirleiks en stjórnandinn, Eyþór Ingi Jónsson,
grípur aðeins í orgel í einu eða tveimur verkum. Flutt verður áhrifarík föstutónlist eftir íslensk og erlend tónskáld,
Önnu Þorvaldsdóttur, Árna Harðarson, Tryggva M. Baldvinsson, Marc-Antoine Charpentier og fleiri. Sérstaklega má nefna að kórinn flytur hið
undursamlega sautjándu aldar verk Miserere mei, Deus eftir Allegri sem ekki mátti fara með út fyrir páfagarð á sínum tíma.
Mozart heyrði verkið í sistínsku kapellunni fjórtán ára gamall og skrifaði það upp sama dag eftir minni. Einnig verður sálmur
Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, Á föstudaginn langa, fluttur í heild sinni, öll erindin átta við lag
Guðrúnar Böðvarsdóttur.
Miðasala verður við innganginn. Troðfullt var á þessa tónleika í fyrra og margir bíða spenntir eftir þessum viðburði.


