- Hymnodia á Myrkum músíkdögum

Hymnodia á Myrkum músíkdögum 2010
Hymnodia tekur í þriðja sinn þátt í tónlistarhátíðinni Myrkum músíkdögum sem fara fram dagana 24.-31. janúar. Þessi tónlistarhátíð Tónskáldafélags Íslands er nú þrjátíu ára og verður þess vegna venju fremur glæsileg. Tónleikar Hymnodiu verða sunnudaginn 31. janúar kl. 14. Tónleikastaðurinn er óvenjulegur. Fyrir valinu varð afskaplega snyrtilegt bílaverkstæði á Kársnesi í Kópavogi, þjónustustöðin Kvikkfix við Vesturvör 30c.
Hymnodia frumflytur tvö íslensk verk að þessu sinni, nýtt verk eftir Oliver Kentish og annað eftir Gísla Jóhann Grétarsson, ungt og upprennandi tónskáld sem er við nám við tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð. Hymnodia þykist eiga nokkuð í Gísla enda hefur hann sungið með kórnum við nokkur tækifæri. Auk þessara nýju verka flytur kórinn verk sem frumflutt voru á liðnu hausti í tónleikaferð Hymnodiu til Reykjavíkur og Sviss. Þetta eru verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Karólínu Eiríksdóttur. Jafnframt verður fluttur spuni. Í raun verða tónleikarnir ein samfelld heild þar sem skiptist á spuni og skrifuð tónverk enda er yfirskriftin Hljóðgjörningur. Sjá nánar um dagskrá Myrkra músíkdaga HÉR.
SUN. 31. jan. kl. 14.00
HYMNODIA
The Hymnodia Chamber Choir
Stjórnandi / Conductor: Eyþór Ingi Jónsson
Þjónustustöðinni
Kvikkfix, Vesturvör 30c, Kópavogi
Kvikkfix Garage, Vesturvör 30c, Kópavogur
HLJÓÐGJÖRNINGUR
Sound Performance
Vertu, Guð faðir, faðir minn Jón Leifs
Lag Hjörleifs Hjörleifur Örn Jónsson
Aðleikur - Þann heilaga kross Anna Þorvaldsdóttir
Þann heilaga kross Anna S. Þorvaldsdóttir
Upplifun - frumflutningur Gísli Jóhann Grétarsson
Hver er allt of uppgefinn Páll Jónsson
Blíða Karólína Eiríksdóttir
Kvölda tekur, sest er sól ísl. þjóðl., úts. Hjörleifur Örn Jónsson
Martröð Hildigunnur Rúnarsdóttir
Tribulationes Civitatum (We have Heard) frumflutningur Oliver Kentish
Ég er að byggja bjarta höll kórspuni - Guðrún Böðvarsdóttir
Kór og hljóðfæraleikarar spinna brýr á milli verkanna
Listræn útfærsla: Arna Guðný Valsdóttir og Hjörleifur Örn Jónsson
LÁRA SÓLEY
JÓHANNSDÓTTIR – FIÐLA
HJÖRLEIFUR ÖRN JÓNSSON - SLAGVERK
EYÞÓR INGI JÓNSSON - ORGEL


