- Fram undan hjá Hymnodiu
Á föstudaginn langa, 10. apríl, verða haldnir miðnæturtónleikar í Akureyrarkirkju þar sem flutt verður píslartónlist eftir Giovanni Battista Pergolesi og Marc-Antoine Charpentier. Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju hefst svo sunnudaginn 3. maí með tónleikum þar sem Hymnodia kemur fram ásamt íslenskum og breskum barokkhljóðfæraleikurum. Flutt verður tveggja kóra mótettan Singet dem Herrn ein neues Lied eftir Johann Sebastian Bach og ófullgerð messa eftir ítalska barokktónskáldið Antonio Lotti. Síðustu helgina í júní, 26.-28. júní, verður haldin fyrsta barokkhátíðin á Hólum í Hjaltadal á vegum Barokksmiðju Hólastiftis. Þar verður að sjálfsögðu flutt barokktónlist. Ekki er ólíklegt að félagar úr Hymnodiu komi fram á Miðaldadögum á Gásum í júlí og í september heldur Hymnodia svo til Sviss með tónlist íslenskra kvenna í farteskinu.


