Fréttir

- Föstudagsfreisting í Ketilhúsinu


Föstudagsfreisting í Ketilhúsinu

hymnodia_hoppar_640_01

Hymnodia kemur fram á hádegistónleikum föstudaginn 5. mars í Ketilhúsinu á Akureyri. Tónleikarnir eru í röðinni Föstudagsfreistingar hjá Tónlistarfélagi Akureyrar.

Á tónleikunum verður flutt brot af þeirri efnisskrá sem kórinn flutti á mögnuðum tónleikum á Myrkum músíkdögum í lok janúar í vetur. Hlustendur fá að heyra nýtt verk, Upplifun, eftir Akureyringinn Gísla Jóhann Grétarsson, sem nú er við tónsmíðanám við tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð. Verkið er fyrir kór, slagverk, fiðlu og harmóníum og spuni er mikilvægur í flutningi þess. Með kórnum koma fram Hjörleifur Örn Jónsson slagverksleikari, Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari og stjórnandinn, Eyþór Ingi Jónsson, leikur á harmóníum. Af öðrum verkum sem flutt verða má nefna verkið Þann heilaga kross sem Hymnodia frumflutti í tónleikaferð til Sviss á lðinu hausti. Tónleikarnir verða í spunaformi og ekkert hlé milli verka heldur bindur spuninn verkin saman í eina heild. Möguleikar Ketilhússins verða nýttir eins og við þykir eiga.



Mynd augnabliksins

Facebook-síða Hymnodiu

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 4519

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning