- Barokkhátíđin tókst vel

Fyrsta barokkhátíð Barokksmiðju Hólastiftis sem haldin var dagana 26.-28. júní tókst með miklum ágætum. Námskeið í söng og dansi gengu mjög vel og tónleikarnir á sunnudeginum voru mjög vel sóttir. Hóladómkirkja var þétt setin þegar þátttakendur í hátíðinni fluttu afraksturinn af námskeiðum og æfingum helgarinnar. Næsta barokkhátíð á Hólum verður haldin síðustu helgina í júní 2010. Undirbúningur fyrir þá hátíð er þegar hafinn.
Sjá má fleiri myndir frá fyrstu hátíðinni hér.

