Fréttir

- Barokkhátíđ á Hólum í Hjaltadal

hlar__hjaltadal

 Barokk-

   hátíð

 Fyrsta barokkhátíð
 Barokksmiðju Hólastiftis
 verður haldin á Hólum í
 Hjaltadal dagana 26.-28.
 júní 2009. Stærstur hluti
 Hymnodiu tekur þátt í
 hátíðinni og einnig góður
 hópur hljóðfæraleikara og
 annarra söngvara. Marta
 Guðrún Halldórsdóttir
 heldur meistaranámskeið í
 söng á laugardaginn og
 Ingibjörg Björnsdóttir
 kennir barokkdans á
 námskeiði sem er öllum
 opið.

 

 



 




Dagskrá

 

Föstudagur 26. júní

Þátttakendur í hátíðinni koma að Hólum og koma sér fyrir í gistingu, annað hvort í húsum Ferðaþjónustunnar eða á tjaldsvæði.

 

20.00   Kvöldvaka í Auðunarstofu

-          Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup ræðir um Hólastað á tíma barokksins.

-          Pétur Halldórsson segir frá hugmyndinni að stofnun Barokksmiðju Hólastiftis, ræðir um strengjaorgel og segir frá ferð til hljóðfærasmiða í Þýskalandi.

-          Ingibjörg Björnsdóttir danskennari segir frá barokkdönsum og námskeiði laugardagsins og ef viðstadda kitlar í iljarnar verða fyrstu barokkdanssporin stigin.

-          Söngvarar og hljóðfæraleikarar hittast og ræða um verkefni helgarinnar. Hér er tækifæri til að mynda tónlistarhópa úr þeim efniviði sem þátttakendur hátíðarinnar eru.

-          Gönguferð upp í Gvendarskál. Hljóðfæraleikurum og söngvurum er frjálst að hefja upp söng og hljóðfæraslátt og láta fjöllin óma.

Aðgangur ókeypis

 

Laugardagur 27. júní

8.30     Morgunleikfimi í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur.

9.00     Námskeið í barokkdansi hefst. Ingibjörg Björnsdóttir leiðbeinir. Þátttaka ókeypis.

9.00     Meistaranámskeið Mörtu Halldórsdóttur hefst. Námskeiðið er opið áheyrendum.

9.00     Tónlistarhópar hittast til æfinga.

 

12.00   Hádegishlé

 

13.00   Námskeið halda áfram og æfingar tónlistarhópa.

 

16.00   Eyþór Ingi Jónsson, organisti og kórstjóri, ræðir um táknfræði og talnaspeki barokktónlistarinnar. Söngvarar og hljóðfæraleikarar verða e.t.v. nýttir til að gefa tóndæmi.

 

17.00   Slökun eða áframhaldandi æfingar eftir þörfum.

 

19.00   Barokkkvöldverður og barokkdansleikur í sal Hólaskóla. Tónlistarfólk á hátíðinni leikur fyrir dansi og velkomið er að troða upp undir borðum.

 

Sunnudagur 28. júní

11.00   Barokkguðsþjónusta í Hóladómkirkju. Prestur hr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup. Organisti og tónlistarstjóri Eyþór Ingi Jónsson. Tónlistarfólk á hátíðinni tekur þátt í tónlistarflutningi.

 

14.00   Tónleikar í Hóladómkirkju. Þátttakendur á fyrstu barokkhátíð Barokksmiðju Hólastiftis flytja afraksturinn af starfi helgarinnar. Aðgangur ókeypis.

 



Mynd augnabliksins

Facebook-síđa Hymnodiu

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 4519

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á nćstunni

Engir viđburđir á nćstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning