- Æfingabúðir á Reykjum í Fnjóskadal
Hymnodia dvaldi 13.-15. mars 2008 í æfingabúðum á bænum Reykjum í Fnjóskadal þar sem Norðurorka hefur gert upp gamla
íbúðarhúsið með miklum glæsibrag. Þarna fór mjög vel um hópinn og miklar framfarir urðu í æfingum á
mótettunni Singet dem Herrn ein neues Lied eftir J.S. Bach og verkum eftir Antonio Lotti. Sjá myndir hér.


