Flýtilyklar
Myndir úr starfi kórsins
Forsíða plötunnar
Nokkur saga er bak við það hvernig þessi mynd rataði á forsíðu fyrstu plötu Hymnodiu. Þegar farið var að leita að mynd sem myndi hæfa á forsíðu plötu með verkum íslenskra kvenna var fyrst leitað í ljósmyndum Minjasafnsins á Akureyri sem er að finna á vef safnsins. Því næst var farið á vef Þjóðminjasafnsins og viti menn, þar birtist strax þessi fallega stúlka, svo tímalaus, hrein og tær en þó með svo sterk, íslensk einkenni, hnarreist og einbeitt. Þegar þess var farið á leit við starfsfólk Þjóðminjasafnsins að fá að nota myndina á plötuumslag kom í ljós að myndin er tekin um 1913 af Katrínu Ólafsdóttur, aldmótastúlku úr Reykjavík. Okkur var bent á að hafa samband við dætur Katrínar til að fá leyfi fyrir notkun myndarinnar og þær sögðu þá sögu af móður sinni, sem gerir myndina enn dýrmætari, að Katrín hefði árið 1919 farið til Kaupmannahafnar til að nema fiðluleik við konunglegu tónlistarakademíuna. Hún átti síðan stuttan feril sem fiðluleikari hér heima og lék með hljómsveitum, ef til vill Hljómsveit Reykjavíkur sem var undanfari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Eins og tíðarandinn var á þessum árum gaf Katrín tónlistarferilinn upp á bátinn þegar hún giftist og eignaðist börn. Þetta gefur plötu Hymnodiu enn meira gildi sem framlagi til kvennabaráttunnar.
Heimsóknir
Samtals: 4768



